Ég hef verið að þróa stjörnumerkja myndir síðan árið 2006. Á döfinni er að vera með fleiri útgáfur af þeim en það er allt á teikniborðinu í augnablikinu. Ég er t.d. núna að hanna barnalega stjörnumerkja línu, eina fyrir stelpur og aðra fyrir stráka.

Það er hægt að panta stjörnumerkin í hvaða lit sem er, allt eftir smekk hvers og eins. Ég get líka skrifað inná myndirnar ef þess er óskað. Þetta eru Akrýl málverk í vönduðum ramma. 10x10 cm.

Vinsamlega athugið, þar sem hvorki er um eftirprentun né lagervöru að ræða og allar myndir málaðar eftir pöntun, þarf ég að gefa mér nokkra daga frá því að pöntun er móttekin til að klára verkið, því er ekki hægt að afgreiða pantanir samdægurs. Engar tvær myndir eru nákvæmlega eins sem gerir hverja mynd einstaka og persónulega.